Gátlisti fyrir komu og brottför í Vísindakistuna
Gangið vel um um húsið og áhöldin
Nestisaðstaðan er utandyra
Muna að taka allt rusl með sér eða henda í ruslatunnur úti
Ekki gleyma að taka töskurnar og nestisboxið (lífræna) heim
Þurrka af verkefnum og áhöldum áður en gengið er frá þeim
Ganga frá öllu á sama stað og telja fjölda áhalda í rétta kassa/box
Læsa útidyrahurðinni
Muna að setja lykilinn í lyklahólfið
Gefið kistunni endurgjöf eftir heimsókn, þ.e. hvernig var, hvort eitthvað vanti, hvernig aðkoma var á kistu ofl.sem okkur þætti gott að vita hér.
Njótið vel heimsóknarinnar í Vísindakistuna.